Rúv lógó
Hafið bláa hafið




 
Inngangur Það sem þú munt kanna Viðfangsefnið

Inngangur

Ferðastu um heiminn og kannaðu mismunandi vistkerfi, allt frá þeim furðulegu til þeirra sem flestir þekkja. Viðfangsefnið er í sjö þáttum sem tengjast hver sínu sértæka efni og umhverfi eins og þættirnir í Sjónvarpinu.

 
Ferð í undirdjúpin - ný sýn á plánetuna okkar
Kafað í djúpið - furðulegir leyndardómar á ókönnuðum slóðum
Úthöfin - háskaferðir um víða veröld undir öldum hafsins

Væntanlegt
Heimskautin - allt um ísbreiður kaldar og hnattvermingu
Við Kóralrifið - lífið í einu mesta þéttbýli veraldar
Lífið við ströndina - aðlögun í harðbýlu vistkerfi

 

Með því að rekja þig í gegnum þrautirnar fræðistu um víðtækar hættur sem að jörðinni allri stafa með því að skoða einstök atriði. Málið er: "Ef þú hugsar á heimsvísu sérðu hvað hollast er heima."

Ef horft er til Jarðar úr myrkum geimnum sést að hún ber ekki nafn með rentu. 70% af yfirborði jarðar eru nefnilega undir vatni og úr fjarska sýnist hún vera heiðblá. Vatnið - og þá fyrst og fremst óravíð höfin - gera jörðina einstaka og breyta "bláu plánetunni" í vin, iðandi af lífi.


Reyndu við fyrstu þrautina, Ferð í undirdjúpin.

Þú færð að kanna nokkur ólík búsvæði í hafinu og kynnast fjölda af sjávardýrum á leið þinni frá grýttri strönd til furðuheima undirdjúpanna.