Þú ert að leggja upp í könnunarleiðangur um úthöfin.
Þessi fróðlega sjóferð hefst á klettóttri strönd. Þaðan liggur leiðin út á sólbjart grunnsævi undan ströndinni en síðan er stöðugt haldið lengra og dýpra og alltaf dimmir þar til myrkvuð undirdjúpin taka við.
Þrautin felst í því að kanna eins mikið af hafdjúpunum og þér er unnt án þess
að glata lífinu - en þú færð fimm líf. Ertu til í að stinga þér?
