Mánud. - föstud. kl. 12.50 og 18.50
Laugard. - sunnud. kl. 18.50
Tekið er á móti tilkynningum virka daga frá 9 - 17 í síma 515 3060 og í gegnum vefinn hér.
Leiðbeiningar:
- Algengt er að dánarfregnir séu 10-12 orð upp í 80 orð. Meðaldánarfregn er um 25 til 30 orð.
- Athuga þarf að tímasetning á jarðarför fylgi með útfarartilkynningunni.
- Ef nafn þess látna er algengt er gott að hafa heimilisfang eða starfsheiti ef hægt er, sérstaklega ef undirskrift er bara vandamenn.
- Ekki er tekið á móti tilkynningum þar sem þakkað er fyrir sýnda samúð, nema þær fylgi andláts- eða jarðarfarartilkynningu.
- Athuga þarf að yfirskrift og undirskrift stemmi. T.d. gengur ekki að segja: Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma... og hafa einungis Börn hinnar látnu í undirskrift. Þá væri hægt að stytta yfirskriftina í Ástkær móðir okkar og sleppa tengdamóðir og amma eða láta yfirskriftina standa og breyta undirskrift í börn, tengdabörn og barnabörn.
- Ekki fer vel í lestri ef nöfn í undirskrift eru fleiri en sjö eða átta.
- Hjón eða sambýlisfólk er haft saman í undirskrift.
- Ekki er nauðsynlegt að segja í andlátstilkynningu Jarðarförin auglýst síðar af því að það er yfirleitt gert.
- Tilkynningarnar geta t.d. byrjað á Hjartkær, ástkær eða elskulegur...
Dæmi um dánartilkynningu:
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Jón Jónsson, Efstaleiti 1, lést mánudaginn
1. janúar.
Jóna Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
Dæmi um útfarartilkynningu:
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Jón Jónsson, Efstaleiti 1, sem lést mánudaginn 1. janúar, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 5. janúar, klukkan 13.30.
Jóna Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
Nánari upplýsingar og aðstoð er hægt að fá með því að hafa samband í síma 515-3060 eða mæta í Útvarpshúsið, Efstaleiti 1.