Hundar
Kettir
Nagdýr
Fuglar
Fiskar

Ráðgjöf

Myndir
Myndbönd

Annað
Molar
Tenglar


Um vefinn

Brynhildur Jenný Bjarnadóttir teiknaði skemmtilegu
dýramyndirnar á Gæludýravefnum. Hún er að læra teiknimyndagerð í háskóla í norður Wales. Áður var hún í tvö ár við listnám í Flórens á Ítalíu. Hún á gráan kött sem heitir Kisa Lísa Matthildur. Fjölskyldan fann hana sem flæking fyrir næstum tíu árum síðan. Kisa Lísa er mjög sérstök, mjálmar mikið og heilsar alltaf nágrönnunum með kurteisislegu mjálmi. Hún er lömuð öðru megin á andlitinu þannig að hún getur ekki lokað öðru auganu né hreyft eyrað. Kisa Lísa Matthildur veiðir ekki nema helst teygjur og vettlinga sem hún finnur á götunni og fer aldrei langt
frá húsinu.
 


Líney Jónsdóttir er dýralæknir og veitir ráðgjöf á
Gæludýravefnum. Ef eitthvað amar að dýrinu ykkar getið þið sent inn spurningu til hennar. Líney lærði dýralækningar í Hannover í Þýskalandi og útskrifaðist árið 1997. Hún á tvö börn, níu ára stelpu og strák sem er að verða þriggja ára. Fjölskyldan á tvo ketti sem heita Snælda og Fjósi. Það var lengi sterk fjósalykt að Fjósa en hann er úr sveit. Þau eiga líka hesta og fara oft á hestbak, sérstaklega á veturna þegar búið er að taka hestana inn á hús.
 










 


Selma Hrönn Maríudóttir sá um hönnun og uppsetningu á Gæludýravefnum. Hún er vefhönnuður og rafeindavirki. Selma á 3ja mánaða gamlan son og fjölskyldan á tvær 5 ára kisur sem heita Glingló og Dabbi. Glingló finnst gaman að leika sér úti og hefur skrítinn matarsmekk. Hún er t.d. mjög hrifin af bernaisesósu og grænum baunum. Dabbi er hins vegar meiri inni kisa og fer aldrei langt frá húsinu. Dabba finnst kisumaturinn bestur og það er fátt annað sem heillar nema kannski rækjur.
 




Sigríður Pétursdóttir er hugmyndasmiður og vefstjóri
Gæludýravefsins. Hún er kennari og kvikmyndafræðingur. Sigríður á einn þrettán ára son og tvo stjúpsyni, fimm og tíu ára. Það er ekkert gæludýr á heimilinu vegna ofnæmis. Þegar Sigríður var lítil reyndi hún einu sinni að eiga síli sem gæludýr og hafði þau í vaskafati bakvið hús. Hún reyndi líka að eiga músarunga. En þið skuluð ekkert vera að prófa það.