Á forsíðu www.ruv.is
Á forsíðu www.ruv.is
Á forsíðu eurovision.is


Selma Björnsdóttir flytur framlag Íslendinga í Söngvakeppni sjónvarpsstöðva 2005
Lagið er eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson og Vigni Snæ Vigfússon.
Textinn er eftir Lindu Thompson.
18.01.2006
Sjónvarpið tekur í ár þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í nítjánda sinn og jafnframt verða þá liðin 20 ár frá því að Gleðibankinn tók þátt í keppninni.
08.06.2005
Netkosning stendur yfir á opinberri heimasíðu Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva til þess að velja vinsælustu lög keppninnar frá upphafi. Valin hafa verið 100 lög úr 50 ára sögu hennar og er þeim skipt niður í 5 10 ára tímabil. Framlag Íslands frá árinu 1999 er eitt af þeim 100 lögum sem sérstaklega er bent á við kosningu 14 vinsælustu laganna, en öll lög frá upphafi keppninnar koma til greina.
21.05.2005
Grikkir fóru með sigur af hólmi í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í kvöld.  Þeir fengu 230 stig en næstir komu Maltverjar með 192 stig. 7 af 10 efstu löndunum komu úr undankeppninni, þar á meðal voru Danir og Norðmenn í 9. og 10. sæti með 125 stig.  Stigataflan úr undankeppninni var kunngjörð eftir úrslitin. Íslenska framlagið fékk 52 stig og lenti í 16. sæti.
20.05.2005
Selma Björnsdóttir er undrandi á að Ísland komst ekki í úrslit í söngvakeppni evrrópskra sjónvarpsstöðva en er annars ánægð með frammistöðu sína og íslenska hópsins.
20.05.2005
Ísland komst ekki í aðalkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva vegna þess hve mörg Norðurlönd voru í undankeppninni. Þjóðir gefa grannþjóðum sínum stig, segir Íris Davíðsdóttir stjórnmálafræðingur
20.05.2005
Íslenska lagið og Selma Björnsdóttir komust ekki áfram í aðalkeppnina á laugardag í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Gífurleg vonbrigði ríkja í íslenska hópnum að sögn Loga Bergmanns Eiðssonar fréttamanns sem er í Kænugarði.  
19.05.2005
Íslensku keppendurnir í Evróvisjón voru ekki meðal 10 efstu þátttakenda kvöldsins í Kænugarði og eru því á leiðinni heim.                                        
19.05.2005
Selma Björnsdóttir stígur á svið í Palas Sport höllinni í Kænugarði í kvöld. Laginu er spáð góðu gengi og æfingin í dag heppnaðist mjög vel sem hefur aðeins létt stemmninguna í hópnum.
19.05.2005
Forkeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verður haldin í Palats sporthöllinni í Kænugarði í Úkraínu í kvöld. Keppnin er send út beint um alla Evrópu og hefst klukkan 19 að íslenskum tíma. Selma Björnsdóttir segir keppnina í ár minna á sirkus.
18.05.2005
Selma er í efsta sæti í skoðanakönnunum um það hvaða lög komast áfram í undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
18.05.2005
Íslenska laginu er, eins og oft áður, spáð afar góðu gengi í undanúrslitum Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fara í Palas sport höllinni í Kænugarði annað kvöld. Nú í hádeginu hófst fyrsta aðalæfingin.
17.05.2005
Norðurlandaþjóðirnar sameinuðust í veislu í Evróvision í Kænugarði í kvöld með fjölmörgum blaðamönnum. Þrátt fyrir góða dóma er nokkur skrekkur í íslenska hópnum.
16.05.2005
Íslendingum hefur gengið vel á æfingum fyrir Evrópusöngvakeppnina. Selma biður þó Íslendinga að anda rólega, fyrst þurfi að komast í gengum undankeppnina.
13.05.2005
Í þættinum Brot úr degi í morgun, með Hrafnhildi Halldórsdóttur, heyrðu hlustendur í Selmu Björnsdóttur á blaðamannafundi daginn eftir komuna í Kiev. Á blaðamannafundinum sagðist Selma vonast til þess að fá tækifæri til þess að fá að skoða borgina. Selma kvaðst einnig ánægð með sviðið.
11.05.2005
Selma Björnsdóttir lagði af stað til Kænugarðs snemma í morgun með fríðu föruneyti. Evróvisjónfararnir verða ekki komnir á áfangastað fyrr en seint í kvöld og verður fyrsta æfingin af mörgum á morgun. Að venju er íslenska laginu spáð góðu gengi og þær raddir eru sennilega háværari nú en oft áður.
11.05.2005
Selma Björnsdóttir, fulltrúi Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, var í gærkvöld útnefnd sendiherra fyrir SOS-barnaþorpin á Íslandi og þá sérstaklega fyrir nýtt barnaþorp sem Íslendingar taka þátt í að fjármagna í Úkraínu.
09.05.2005
Uppi varð fótur og fit þegar skórnir sem Selma hugðist klæðast í keppninni hurfu.
RAUNTÓNAR // SELMA - IF I HAD YOUR LOVE



Sæktu þér hringitón með If I had your love með því að smella hér »

Til þess að geta sótt hringitóninn verður síminn þinn að styðja mp3 skrár. Síminn þarf einnig að vera með MMS stillingar virkar. Þjónustan er eingöngu fyrir viðskiptavini Og Vodafone eins og er og hver tónn kostar 199 kr.
Nánar »

Smelltu hér til þess að kaupa lagið á tónlist.is »
Selma syngur lagið Neka Mi Ne Svane!
Smelltu hér til að hlusta á Selmu syngja lagið Neka Mi Ne Svane við gítarundirleik Vignis Snæs Vigfússonar »
Hún söng þetta lag í þættinum Laugardagskvöld með Gísla Marteini 19. mars síðastliðinn þegar hún kynnti íslenska framlagið If I Had Your Love. Hún heldur mikið upp á þetta króatíska lag sem Danijela söng í Eurovision keppninni sem haldin var í Birmingham í Bretlandi 1998 og hafnaði þar í 5. sæti.

Selma fór í viðtal hjá Guðrúnu Gunnarsdóttur á Rás 2 á laugardagsmorgun (9. apríl). Smellið hér til þess að hlusta á viðtalið!

Veggfóður!
Byrjaðu á því að velja stærð veggfóðurs á næstu síðu: lítið (640 x 480), meðalstórt (800 x 600) eða stórt (1024 x 768). Smelltu á stærðina sem þú hefur áhuga á og þá birtist stærri mynd í nýjum glugga. Farðu með músina yfir myndina og hægrismelltu. Þá birtist valseðill á skjánum. Veldu 'set as wallpaper' eða 'set as background'.
Skoða veggfóður »

Selma tíunda í röðinni

Selma verður tíundi keppandinn sem stígur á svið íþróttahallarinnar í Kænugarði þegar fulltrúar 25 landa reyna með sér í forkeppninni. Hún fer fram fimmtudaginn 19. maí kl. 19.00 að íslenskum tíma. Fulltrúar tíu stigahæstu landanna komast áfram og taka þátt í aðalkeppninni sem fer fram laugardagskvöldið 21. maí 2005.