Andarnefja
Latneska heitið er:
Hyperoodon ampullatus.
Andarnefja er tannhvalur. Nafn sitt dregur hún af höfuðlaginu,
trýnið er mjótt og ennið hátt og kúpt.
Hún er grásvört á litinn og heldur ljósari
að neðan en á bakinu. Með aldrinum verður
litur hennar oft ljósari.
Hún er 7-9 m á lengd og 6-8 tonn að þyngd.
Kýrin er talsvert minni en tarfurinn. Kvendýrin eru
tannlaus.
Andarnefja lifir aðallega á smokkfiski. Hún er
mjög forvitin og er auðvelt að lokka hana að með
hljóðum. Hún er einstaklega félagslynd
og trygglynd. Hún yfirgefur ekki særðan félaga
fyrr en hann deyr. Hún er geysilegur kafari. Hún er
farhvalur og er einungis hér við land á sumrin.

|