Búrhvalur
Latneska heitið er:
Physeter macrocephalus.
Hann er stærstur allra tannhvala. Hann er 8-20 m á
lengd og 20-50 tonn að þyngd. Kýrin er talsvert
minni en tarfurinn. Höfuðið er mjög stórt
eða þriðjungur af lengd hvalsins. Hann er dökkgrár
að ofanverðu, ljósari á hliðunum en silfurgrár
að neðan.
Hann hefur um 50 tennur í neðri skolti. Hann hefur stærsta
heilabú sem nú þekkist í lifandi dýri.
Hann er mesti djúpkafari allra hvala. Fæða hans
er risablekfiskur, túnfiskur, risaskata, hákarl, og
stór kolkrabbi. Hann lifir í öllum heimshöfum.
Hann er fjölkvænisdýr. Hann heldur sig í
margvíslegum hópum. Hann er farhvalur og til Íslands
koma einungis ung karldýr og gamlir tarfar. Búrhvalurinn
getur kafað niður á 3 kílómetra dýpi
og getur verið í kafi í allt að 2 klukkustundir!

|