Heim
Heima Hvalir  Sögur  Ljóð  Hvalaskóðun  Leikir
Heima
         
 
 

Molar

Hljóð Hvalahljóð

 

GrindhvalurGrindhvalur

Latneska heitið er:
Globicephala melas.

Hann er tannhvalur. Hann er með kúpt höfuð og löng og mjó bægsli sem minna á fuglsvængi. Hann er mjög dökkur, nánast svartur, en á kviðnum hefur hann hvíta rönd. Hann er 4-8 m á lengd og 1,8-5 tonn að þyngd.

Kýrin er talsvert minni en tarfurinn. Aðalfæðan er smokkfiskur. Hann hefur tennur í báðum skoltum. Hann er mjög algengur hér við land á sumrin. Hann er geysilega félagslyndur og heldur sig í mjög stórum hópum, hundruðum og jafnvel þúsundum saman.

Mjög er sérstætt að sjá hversu þétt þeir sofa saman, svo þétt að bægslin snertast. Frægastir eru Færeyingar fyrir veiðarnar á þessum hval.

Hann er stundum kallaður marsvín.

Til baka