Heim
Heima Hvalir  Sögur  Ljóð  Hvalaskóðun  Leikir
Heima
         
 
 

Molar

Hljóð Hvalahljóð

 

HáhyrningurHáhyrningur

Latneska heitið er:
Orcinus orca.

Hann er tannhvalur. Hann hefur stórt höfuð og bægsli sem líkjast spöðum. Hann er svartur að ofan og hvítur að neðan og eru litaskilin mjög skörp. Fyrir ofan og aftan augun eru hvítar skellur.

Hann er 5-10 m á lengd og 2-10 tonn að þyngd. Kýrin talsvert minni en tarfurinn. Fæða hans er mjög margvísleg, má þar nefna: síld, loðnu, smokkfisk, hákarl, skötu, sel, rostung, hval, fugl og jafnvel ísbjörn. Hann hefur 40-56 oddlaga tennur sem geta orðið 10 cm langar. Hann notar ekki tennurnar til að tyggja með, heldur til að grípa með bráðina og drepa.

Hann gleypir fæðuna.  Hann er mjög félagslyndur og heldur sig gjarnan í fjölskylduhópum. Hann fylgir síldar- og loðnugöngunum hér við land á sumrin og haustin.

Nafn sitt dregur hann af háu horni á bakinu.

Til baka