Heim
Heima Hvalir  Sögur  Ljóð  Hvalaskóðun  Leikir
Heima
         
 
 

Molar

Hljóð Hvalahljóð

 

HnúfubakurHnúfubakur

Latneska heitið er:
Megaptera noveangliae.

Hann er skíðishvalur. Hann er fremur stuttur og gildvaxinn. Hann er svartur á baki og hvítur að neðan.

Hann er 12-19 m á lengd og 25-48 tonn að þyngd. Kýrin er stærri en tarfurinn.

Aðalfæðan er ljósáta eða kríli og ýmsir smáfiskar eins og síld og loðna. Þeir fylgja oft loðnunni og valda miklum vandræðum þegar þeir festast í veiðarfærunum og eyðileggja þau.

Hann er farhvalur og kemur hingað á sumrin til að afla sér fæðu. Hann er talinn mesti söngvari allra hvala.

Takið sérstaklega eftir bægslunum, en hnúfubakurinn hefur lengstu bægsli (framlimi) sem þekkjast í náttúrunni. Þau geta orðið allt að 6 metrar á lengd!

Til baka