Heim
Heima Hvalir  Sögur  Ljóð  Hvalaskóðun  Leikir
Heima
         
 
 

Molar

Hljóð Hvalahljóð

 

Hrefna eða hrafnreyður

Hrefna eða hrafnreyðurLatneska heitið er:
Balaenoptera acutorostrata.

Hún er svört á baki og hvít á kvið. Hún er 7-11 m á lengd og 5-10 tonn að þyngd. Kýrin er stærri en tarfurinn.

Aðalfæða hennar hér á norðurhveli er sandsíli og áta þó hún taki líka síld, loðnu og eitthvað af þorski. Hún er farhvalur og kemur hingað á vorin, en á veturna heldur hún sig á suðlægari slóðum.

Hrefnan er mjög forvitin og eltir gjarnan skip til að skoða þau. Hún er minnst skíðishvala hér við land.

Til baka