Langreyður
Latneska heitið er:
Balaenoptera physalus.
Hún er skíðishvalur. Hún er grásvört
að ofan og hvít að neðan. Hún er 18-20
m á lengd og um 70 tonn að þyngd.
Hún lifir aðallega á átu og krabbasvifdýrum
en tekur líka sandsíli. Hún er farhvalur og
kemur að landinu síðari hluta vetrar. Hún
makar sig í hlýrri sjó og þar fæða
kýrnar líka af sér kálfana.
Kýrin er heldur stærri en tarfurinn. Langreyður er skyld
steypireyð og telst næststærst allra hvala.

|