Sandreyður
Latneska heitið er:
Balaenoptera borealis.
Hún er skíðishvalur. Hún er dökkgrá
að lit með ljósan kvið, ljósa bletti á
skrokknum og flekkóttan haus.
Sandreyðurin er 12-20 m á lengd og 20-30 tonn að
þyngd. Kýrin er stærri en tarfurinn.
Hún lifir aðallega á átu og krabbasvifdýrum
en tekur líka sandsíli. Sandreyðurin er farhvalur
og sést hér við land í ágúst
og september.

|