Kæru Vitabörn, velkomin á hvalavefinn!
Vissuð
þið að hvalir geta haldið niðri í sér
andanum í 20-40 mínútur? Búrhvalir geta
meira að segja haldið niðri í sér andanum
enn lengur. Og vissuð þið að hvalkýr ganga
með hvern kálf í allt frá 8 að 18 mánuðum?
Það er mismunandi eftir tegundum. Eða vissuð þið
kannski að heilinn í Búrhval getur vegið allt
að 10 kílóum?
Á hvalavefnum er að finna mikinn fróðleik
um þessi risavöxnu spendýr sjávarins, hvalina.
Einnig er hægt að hlusta á hljóðin sem
þeir gefa frá sér og skemmta sér við
leiki sem tengjast hvölum.
Góða skemmtun !
|