| |
1. Byrjaðu á að búa
til ferning úr A4 blaðinu. Til að búa
til ferning er auðveldast að taka hægra neðra
horn blaðsins og færa það upp eftir blaðinu
þar til neðri brún blaðsins er orðin
samsíða vinstri langhlið blaðsins. Þá
á að brjóta blaðið. |
|
|
2. Til að ljúka við
að búa til ferninginn skaltu klippa út litla
þríhyrninginn sem er samanbrotinn. Hann myndar
ferning þegar hann er lagður út. |
|
 |
3. Brjóttu nú andstæðar
hliðar þannig að þær liggi samsíða
brotinu sem er á ferningunum. |
|
 |
4. Brjóttu litla oddinn sem
stendur út af upp að hinum brotunum. |
|
 |
5. Brjóttu í tvennt
um miðjuna. |
|
 |
6. Brjóttu sporðinn upp. |
 |
 |
7. Klipptu lítillega niður
í sporðinn. Brjóttu brúnir sporðsins
sitt til hvorrar hliðar. |
|
| |
8. Teiknaðu augu, bægsli
og annað sem þig langar að sjáist á
hvalnum þínum. |
|