| |
|
|
Spurningar og verkefni
Hér er að finna alls konar spurningar um hvali og efni
tengt hvölum. Svörin við þeim er að finna
á hinum ýmsu stöðum á hvalavefnum,
ýmist í umfjöllun um einstaka hvali, í
molunum og jafnvel í leikjunum! Ætlar þú
að finna öll svörin við spurningunum?
Góða skemmtun!
- Hvernig er búrhvalur á litinn?
- Hvaða brögðum má beita til þess að
lokka andarnefjuna að?
- Hvernig fara grindhvalsveiðar fram?
- Hvert fara hnýðingarnir á haustin?
- Hversu gömul getur steypireyðurin orðið?
- Hvað verður langreyðurin gömul?
- Hvað er kálfur sandreyðurinnar þungur þegar
hann fæðist?
- Hvað er hnúfubakur þungur?
- Hvað er hrefna þung?
- Hver er aðalfæða hrefnu hér á norðurslóðum?
- Hvort fæðir kýr langreyðurinnar af sér
kálfana í hlýjum sjó eða köldum?
- Hvernig er langreyður á litinn?
- Hvað getur steypireyðurin orðið löng?
- Hvenær kemur hnísan upp að landinu?
- Hvað getur grindhvalur orðið þungur?
- Hvernig er háhyrningurinn á litinn?
- Hvað er heilabúið þungt í búrhvalnum?
- Hversu gamall getur háhyrningurinn orðið?
- Hvað getur hnísan orðið þung?
- Hvað eru hnýðingar þungir?
- Hvað er langreyður þung?
- Hver er aðalfæða sandreyður?
- Hvað er kálfur hnúfubaksins þungur við
fæðingu?
- Hvar heldur hrefnan sig á veturna?
- Hvort er minna, búrhvalskýr eða búrhvalstarfur?
- Hvað getur andarnefjan orðið löng?
- Á hvaða árstíma eru háhyrningar
hér við land?
- Hvernig er grindhvalur á litinn?
- Á hvaða árstíma eru grindhvalir hér
við land?
- Hvort er stærra, kýr hnísunnar eða
tarfurinn?
- Hverrar ættar eru hnýðingar?
- Hvað heitir stærsta dýr jarðarinnar?
- Hvað þyngist kálfur steypireyðurinnar um
mörg kg á dag?
- Hvaða ár var steypireyður friðuð?
- Hvað er sandreyður þung?
- Hverjar eru lífslíkur sandreyður?
- Í hvaða erindum kemur hnúfubakur hingað
á sumrin?
- Hvort er stærra kýr hrefnunnar eða tarfurinn?
- Hvað er kálfur steypireyðurinnar langur við
fæðingu?
- Hvernig er höfuðlag grindhvals?
- Hvað er háhyrningskálfur langur þegar
hann fæðist?
- Hversu gömul getur andarnefjan orðið?
- Búrhvalurinn er fjölkvænisdýr, hvað
merkir það?
- Hvað er kálfur hrefnunnar langur við fæðingu?
- Hvernig er hnúfubakur á litinn?
- Hvað er kálfur langreyðurinnar þungur við
fæðingu?
- Hver er aðalfæða steypireyðurinnar?
- Hvort lifir hnísan ein út af fyrir sig eða
í hópum?
- Hver er minnsti tannhvalurinn hér við land?
- Hvert leitar andarnefjan þegar haustar?
- Hvað er búrhvalskálfurinn þungur þegar
hann fæðist?
- Hvernig er hrefna á litinn?
- Hvort er stærra kýr sandreyðurinnar eða
tarfurinn?
- Hvað er búrhvalskálfurinn langur þegar
hann fæðist?
- Hvaðan dregur andarnefjan nafn sitt?
- Hver er fæða andarnefju?
- Hvað getur háhyrningur orðið þungur?
- Hvað er grindhvalur kallaður öðrum nöfnum?
- Hvað getur hnísan orðið löng?
- Hvernig eru hnýðingar á litinn?
- Hvað er kálfur steypireyðurinnar þungur
við fæðingu?
- Hver er talinn vera næststærstur allra hvala?
- Hver er aðalfæða hnýðinga?
- Hvernig er hnísan á litinn?
- Hvort er minna, kýr andarnefjunnar eða tarfurinn?
- Hvort lifa grindhvalir einir út af fyrir sig eða
í hópum?
- Hvað getur búrhvalur orðið langur?
- Hvað er kálfur andarnefju langur þegar hann
fæðist?
- Hvort er stærra grindhvalskýr eða -tarfur?
- Hvað er hnýðingskálfur langur við
fæðingu?
- Hvernig er steypireyðurin á litinn?
- Hvenær má eiga von á því að
sjá steypireyður hér við land?
- Hvað getur búrhvalurinn verið lengi í
kafi í einu?
- Af hverju dregur háhyrningurinn nafn sitt?
- Hvað getur grindhvalur orðið langur?
- Hvað er kálfur háhyrnings þungur þegar
hann fæðist?
- Á hverju lifa grindhvalir aðallega?
- Hversu gamall getur búrhvalurinn orðið?
- Hvað er hnýðingskálfur þungur við
fæðingu?
- Hvað er kálfur hnísunnar þungur við
fæðingu?
- Hvað etur steypireyðurin mikið á dag?
- Hvernig er sandreyður á litinn?
- Hver er talinn vera mestur söngvari allra hvala?
- Hvað er hrefna löng?
- Hvort er minna, kýr langreyðurinnar eða tarfurinn?
- Hver er aðalfæða hnúfubaks?
- Til hvers notar háhyrningurinn tennurnar?
- Hvað getur andarnefjan orðið þung?
- Hver er stærstur allra tannhvala?
- Hver er aðalfæða hnísunnar?
- Hvað getur steypireyðurin orðið þung?
- Hvað er kálfur sandreyðurinnar langur þegar
hann fæðist?
- Hvað er hnúfubakskálfurinn langur við
fæðingu?
- Hverjar eru lífslíkur hrefnu?
- Hvaða tvær hnýðinga tegundir eru þekktar
hér við land?
- Á hvaða árstíma heldur andarnefjan
sig hér við land?
- Hvað getur búrhvalur orðið þungur?
- Hver er fæða háhyrningsins?
- Hvað er kálfur hnísunnar langur við fæðingu?
- Hvað er langreyður löng?
- Hvað er sandreyður löng?
- Hverjar eru lífslíkur hnúfubaks?
- Hvort lifa búrhvalir einir út af fyrir sig eða
í hópum?
- Hvernig eru bægsli grindhvals?
- Hvað eru hnýðingar langir?
- Hver er aðalfæða langreyður?
- Hvað er hnúfubakur langur?
- Hver er minnsti skíðishvalurinn hér við
land?
- Hver er fæða búrhvals?
- Hvað getur háhyrningur orðið langur?
- Hvernig er höfuð hnísunnar?
- Hvað er kálfur langreyðurinnar langur við
fæðingu?
- Hvort nærist langreyður í hlýjum sjó
eða köldum?
- Hvaða þjóð er fræg fyrir grindhvalaveiðar?
- Hvort lifa háhyrningar einir út af fyrir sig eða
í hópum?
- Hvort er stærra kýr steypireyðurinnar eða
tarfurinn?
- Hvenær ársins má búast við að
sjá sandreyður hér við land?
- Hvort er stærra hnúfubakskýrin eða -tarfurinn?
- Hvað er kálfur hrefnunnar þungur við fæðingu?

|
|