Grjóthrunið úr Tindastóli
Vestanvert við Skagafjörð er stórt
fjall og afar hátt; það heitir Tindastóll,
en að fornu Eilífsfjall. Gengur það allt í
sjó fram og skilur Laxárdal hinn ytra og Reykjaströnd.
Fyrrum voru ferðir alltíðar milli sveita þessara
og fóru menn þá jafnan með sjó fram,
því það hefur verið skemmstur vegur sem
sjá má af afstöðu fyrrnefndra byggðarlaga,
en undirlendi eða fjörumál var þá allstaðar
nokkurt undir Stólnum. Að vísu hafa þá
þó verið til fleiri leiðir sem enn eru tíðkaðar
og liggur ein þeirra út Laxárdalsheiði.
Einhverju sinni bar svo við að hval rak á
Reykjafjöru; norðan undir Tindastól; var þá
gerður mannsöfnuður á Reykjaströnd til
hvalskurðar. Þegar Laxdælir fréttu hvalrekann
og skurðinn gjörðu þeir og mannsöfnuð
og gekkst mest fyrir því presturinn í Hvammi
og djákninn því þeir vildu eigna Hvammskirkju
allan reka á því sviði og fóru á
fund Reykstrendinga er voru að hvalskurðinum. Slóst
þar í illdeilur með þeim er hvorir tveggja
þóttust eiga hvalinn, en hvorugir vildu vægja
fyrir hinum. Þó kom svo fyrir umtölur góðgjarnra
manna að Laxdælir skyldu mega sanna með eiði ef
þeir treystust að þeir ættu land það,
er hvalurinn var á rekinn og skyldu þá Reykstrendir
ekkert af honum hafa. Gengu Laxdælir svo að hvalnum og
unnu eiða að því að sú jörð
er þeir stæðu á væri Hvammskirkju eign
á Laxárdal; enda var svo að jörð sú
er var í skóm þeirra var eign Reykja á
Reykjaströnd; því þeir höfðu rist
grassvörð fyrir íleppa í skó sína
í Hvammskirkju landi, aðrir segja í kirkjugarðinum
í Hvammi, áður en þeir fóru norðan.
Þegar þeir höfðu unnið eiðinn,
létu Reykstrendir rekann af hendi og fóru heim síðan,
því þeir hugðu allt falslaust af hinna hendi,
en Laxdælir tóku til skurðar. En er þeir
höfðu skamma stund skorið hvalinn féll skriða
úr Stólnum yfir þá og hvalinn svo þeir
týndust þar allir nema drengur einn sem ekki hafði
unnið eiðinn; hann komst aðeins undan að flytja
Laxdælum tíðindin sem gerst höfðu í
för hans. En skriðan huldi ekki einungis hvalinn og mennina,
heldur tók hún gjörsamlega af veginn er verið
hafði allt til þess norðan undir Tindastól;
sú skriða heitir síðan Hvalurð. Það
er sögn manna, að hvítklæddur maður hafi
sézt uppi á fjallinu áður en skriðan
losnaði; hafi hann átt að hafa sprota í hendi
og lostið honum á fjallið þar sem skriðan
tók sig upp.
Úr Þjóðsögum Jóns
Árnasonar

|