|
|||||
| EFNISYFIRLIT Í Reykjavík Í Stokkhólmi Afhendingin
|
Afhendingin ![]() Frá athöfninni í Konserthúsinu í Stokkhólmi 10. desember 1955. Ljósm./Reportagebild. Afhending nóbelsverðlaunanna fór fram
við hátíðlega athöfn í Konserthúsinu í Stokkhólmi. Dagskránni var útvarpað beint í Ríkisútvarpinu. Árni Gunnarsson, fréttaritari
Útvarpsins í Svíþjóð, var kynnir. Hann lýsti aðstæðum og
kynnti nóbelsverðlaunahafana
. Elias Wessén, félagi Sænsku akademíunnar,
flutti ávarp á sænsku um Halldór og verk hans, en hann
ávarpaði skáldið einnig á íslensku áður en Gústaf Adolf VI. Svíakonungur afhenti verðlaunin.
Í þættinum Sex
dagar í desember sögðu nokkrir gestir frá athöfninni. Þeirra á meðal voru
Ragnar Jónsson, Auður Laxness, Peter Hallberg, Sylvía Briem, dóttir Helga Briem
sendiherra, og íslensku stúdentarnir Erlendur Lárusson og Sveinn Einarsson.
|
Konserthúsið Árni Gunnarsson kynnir
Verðlaunahafarnir Frásagnarmeistarinn Laxness Verðlaunaafhendingin Halldór hneygði sig fyrir kónginum ... |
©Ríkisútvarpið-menningardeild / Ljósmyndasafn Reykjavíkur 1998