|
|||||
| EFNISYFIRLIT Í Reykjavík Í Stokkhólmi Heimildir
|
Heimildir
Vefurinn um Bókmenntaverðlaun Nóbels 1955 var unninn á Ríkisútvarpinu en Halldór Halldórsson, barnabarn Halldórs Kiljans Laxness, opnaði hann
á degi bókarinnar, 23. apríl 1998. Anna Melsteð og Jón Karl Helgason
sáu um útgáfu vefsins en Sigurjón Baldur Hafsteinsson og Guðbrandur Benediktsson á Ljósmyndasafni Reykjavíkur
höfðu umsjón með íslensku myndefni. Sérstakar þakkir fá Auður Laxness, Vaka-Helgafell, Herdís Kristjánsdóttir,
Þorsteinn Helgason, viðmælendur í fléttuþættinum Sex dagar í desember og þeir fjölmörgu starfsmenn Ríkisútvarpsins sem lagt hafa hönd á plóginn.
Efni á vefnum er fengið úr eftirfarandi heimildum:
Halldór Laxness. Ræða haldin á nóbelshátíð í Stokkhólmsráðhúsi 10. desember 1955. Gjörníngabók. Reykjavík:
Helgafell 1959, s. 51-53.
Myndskeið frá Stokkhólmi birt með leyfi Sænska ríkissjónvarpsins SVT.
Nóbelsverðlaun 1955. Lífsmyndir skálds. Æviferill Halldórs Laxness í myndum og máli.
Ólafur Ragnarsson og Valgerður Benediktsdóttir tóku saman. Reykjavík: Vaka-Helgafell 1992,
s. 95-110. Ljósmyndir í þessum kafla eru flestar úr einkasafni Halldórs og Auðar Laxness
en voru teknar af sænskum ljósmyndurum.
Sex dagar í desember. Fléttuþáttur, upphaflega á dagskrá Rásar 1 í febrúar 1994.
Umsjón: Jón Karl Helgason, hljóðstjórn Anna Melsteð. Í þættinum rifjuðu nokkrir gestir
upp Nóbelshátíðina í Stokkhólmi 1955. Sögumaður var Ragnar Jónsson, útgefandi Halldórs,
sem skrifaði vinum á Íslandi bréf um þessa viðburðarríku daga í desember. Þorsteinn Helgason
ljáði Ragnari rödd sína. Auk þess voru viðmælendur þau Auður Laxness, eiginkona Halldórs;
Doris Briem, eiginkona Helga Briem sendiherra og Sylvía Briem dóttir þeirra; sænski
bókmenntafræðingurinn Peter Hallberg sem þýddi ýmis verk Halldórs og skrifaði fjölda bóka
og ritgerða um skáldið; Birgir Möller, sem þá var sendiráðsritari í Stokkhólmi; Erlendur
Lárusson, Haukur Tómasson og Sveinn Einarsson en þeir voru í stjórn íslenska stúdentafélagsins
í Stokkhólmi árið 1955. Safnadeild Ríkisútvarpsins, DB 14303.
Stuttbylgjuútvarp frá Stokkhólmi:
Gústav Adolf Svíakonungur afhendir Halldóri Kiljan Laxness bókmenntaverðlaun Nóbels.
Úr dagskrá Ríkisútvarpsins 10. desember 1955. Safnadeild Ríkisútvarpsins, DB 5144.
Upptaka frá komu Halldórs Kiljans Laxness til Reykjavíkur 4. nóvember 1955. Safnadeild Ríkisútvarpsins, DB 5143.
Viðtal við Halldór Kiljan Laxness. Jón Magnússon fréttastjóri ræðir við skáldið í tilefni af nóbelsverðlaununum.
Safnadeild Ríkisútvarpsins, DB 5143.
|
TENGDIR VEFIR
Nóblesstofnunin Sænska akademían Hernám Íslands RÚV & Ljósmyndasafnið
Lýðveldisvefurinn
Passíusálmavefurinn
|
©Ríkisútvarpið-menningardeild / Ljósmyndasafn Reykjavíkur 1998