Eiginhandarrit Hallgríms Péturssonar ađ Passíusálmunum, hiđ eina sem til er, er
varđveitt í Landsbókasafni Íslands Háskólabókasafni. Ţađ er einn mesti
dýrgripur safnsins. Á árinu 1995 veitti Ţjóđhátíđarsjóđur safninu styrk til ađ
láta gera viđ handritiđ, en ţađ ţurfti ađhlynningar viđ. Fjarlćgđ voru svo sem
kostur var ummerki miđur góđra viđgerđa frá síđustu öld. Ţá var og handritiđ
tekiđ úr lúnu bandi frá sama tíma, og verđur ţađ bundiđ inn ađ nýju međ ţeim
hćtti ađ sem best verđi til verndar handritinu og skilji ekki eftir sig ummerki ţótt
síđari tíma viđhorf kunni ađ kalla til ţess ađ bandiđ verđi fjarlćgt aftur.
Ţetta merka handrit hefur einu sinni veriđ ljósprentađ áđur í Lithoprent
áriđ 1946. Sú hugmynd kom upp fljótlega eftir ađ fariđ var ađ gera handritinu til
góđa ađ ljósprenta ţađ á nýjan leik, enda fyrri útgáfa löngu uppseld. Og ţótt
fyrrgreind ljósprentun sé góđ telja menn sig geta gert nokkru betur međ ţeim
ađferđum sem nú eru tiltćkar, auk ţess sem vissir stađir í handritinu koma betur
fram ađ viđgerđ lokinni en áđur.
Sú ćtlun ađ gefa handritiđ út aftur ljósprentađ naut einnig stuđnings af ţví
ađ áriđ 1996 var minningar vert í mörgum skilningi: Í fyrsta lagi fagnađi
Landsbókasafn ţá 150 ára afmćli handritadeildar. Í öđru lagi voru ţrjár aldir
liđnar síđan Passíusálmarnir komu fyrst út einir ljóđa í bók. Ţađ var í
merkri útgáfu Ţórđar Ţorlákssonar biskups í Skálholti. Kveđur hann ţar fyrstur
manna upp úr um gildi Passíusálmanna á ţann veg sem síđar átti eftir ađ verđa
dómur ţjóđarinnar. Í ţriđja lagi hafa Passíusálmarnir ávallt komiđ út ţegar
fjögur ár lifa hverrar aldar, ţ.e. 1696, 1796 og 1896. Í fjórđa lagi var á árinu
1996 hálf öld liđin síđan sálmarnir voru fyrst ljósprentađir eins og áđur hefur
komiđ fram. Loks er ţess einnig ađ minnast ađ á árinu 1996 voru tíu ár síđan
vígđ var hin mikla kirkja sem reist var í minningu Passíusálmaskáldsins á
Skólavörđuholti í Reykjavík.
Stafréttur texti eiginhandarrits Hallgríms ađ Passíusálmunum kom út á vegum Hins
íslenska frćđafélags í Kaupmannahöfn áriđ 1924 í umsjá Finns Jónssonar, en án
ţess ađ eftirmynd handritsins fylgdi međ til hliđsjónar. Í útgáfu Landsbókasafns
Íslands Háskólabókasafns er hinn stafrétti texti birtur viđ hliđ eftirmyndar
handritsins og hann látinn standast á viđ ţađ línu fyrir línu, en neđanmáls er
birtur orđamunur sem rekja má til Hallgríms sjálfs. Ţví til viđbótar eru
sálmarnir prentađir sem lestexti međ nútímastafsetningu og ţá skipađ í vers og
ljóđlínur. Textinn birtist ţví í ţremur gerđum í einni og sömu opnunni, ţannig
ađ lesendur geta fetađ sig hvora leiđina sem er frá handritinu til samtímans
eđa öfugt, ţ.e. frá lestextanum yfir í hinn stafrétta, og međ stuđningi hans fylgt
penna Hallgríms í handritinu og numiđ ţannig hvernig hann festi hiđ máttuga
trúarljóđ sitt á blađ, grunlaus um ţađ hverrar hylli sálmarnir áttu eftir ađ
njóta međ ţjóđinni.
Eins og kunnugt er hafa Passíusálmarnir komiđ oftar út en nokkurt annađ rit á
Íslandi. Ţeir voru fyrst gefnir út áriđ 1666 á Hólum, en bćđi ţá og nćstu
ţrjú skipti međ öđru efni. Síđan hafa ţeir oftast komiđ út einir sér í bók,
en í nokkur skipti í sálmabókum eđa frćđiritum. Skrár um útgáfurnar hafa birst
nokkrum sinnum, en engin ţeirra er samin međ kröfur bókfrćđinnar í fyrirrúmi.
Segja má ađ ţađ standi engum nćr en ţjóđbókasafninu ađ gera Passíusálmunum
skil bókfrćđilega. Ţví er ţađ ađ útgáfu Landsbókasafns Íslands
Háskólabókasafns fylgir skrá um fyrri útgáfur og prentanir sálmanna, og telst svo
til ađ sú útgáfa sé hin átttugasta og ţriđja, auk ţess sem sálmarnir hafa
nokkrum sinnum birst í ţýđingum á erlend mál. Skráin er gerđ međ stuđningi af
ritunum sjálfum. Hverri fćrslu fylgja skýringar eftir ţví sem efni standa til, og
ţćr eru alloft studdar myndum af viđeigandi stöđum í hinum prentuđu útgáfum. Loks
er birt skrá um ţá einstaklinga sem lesiđ hafa Passíusálmana í útvarp á
páskaföstu, allt frá árinu 1944 er tekiđ var ađ flytja sálmana međ ţeim hćtti.
Margir áttu ţátt í ađ gera útgáfu Landsbókasafns Íslands
Háskólabókasafns ađ veruleika. Umsjón međ texta Passíusálmanna höfđu Ögmundur
Helgason, Skúli Björn Gunnarsson og Eiríkur Ţormóđsson. Um bókfrćđi Passíusálmanna fjallađi Ólafur Pálmason. Ljósmyndari
var Helgi Braga, hönnun annađist Torfi Jónsson en umbrot var í höndum Hermóđs
Sigurđssonar. Hallgrímskirkja í Reykjavík, Jöfnunarsjóđur sókna, hérađsnefndir
prófastsdćma landsins og Menningarsjóđur styrktu útgáfuna.
|